Skip to content

Gisting

Uppgerður súrheysturn á einstökum stað við Norðurstrandaleið (Arctic Coast Way) með stórbrotnu útsýni yfir Húnaflóa og til Vestfjarða. Í turninum er 60 fermetra íbúð sem sameinar sérstaka byggingarlist og einstaka náttúruupplifun.

Aðeins 120 metra frá turninum er 3 km löng strönd þar sem selalátur er staðsett. Svæðið er lokað almenningi vegna rannsókna og náttúruverndar, sem gerir upplifunina enn sérstæðari fyrir gesti. Á landareigninni er einnig 9 hektara veiðivatn í göngufæri þar sem gestir geta veitt silung án endurgjalds.

Á staðnum er starfandi hrossaræktarbú og frá maí til október geta gestir bókað einkareiðtúra beint á bænum. Náttúran í kring og fjöllin bjóða upp á ótal möguleika til gönguferða og útivistar allt árið um kring, og á haustin er svæðið ríkt af berjum.

Á sumrin má njóta miðnætursólar og á veturna má sjá norðurljósin, án ljósmengunar og án þess að sjá nágrannahús. Svæðið er sannkölluð paradís fyrir náttúruunnendur og fuglaskoðara, en alls hafa 59 fuglategundir verið skráðar á landareigninni.

Staðsetningin er einnig frábær fyrir dagsferðir til Vestfjarða, Borgarfjarðar, Skagafjarðar eða á fjölmarga fallega útsýnisstaði í nágrenninu.


Um bygginguna

Byggingin var upphaflega gamall súrheysturn. Í stað þess að láta þetta mannvirki hverfa, ákváðum við að endurnýja það vandlega og gefa því alveg nýtt líf. Nú hefur turninum verið breytt í sérstakan gististað, þar sem sagan mætir nútímaþægindum. Lögð var áhersla á að varðveita einkenni upprunalegu byggingarinnar. Í nyrri viðbyggingunni eru inngangur, baðherbergi og eldhús.

Hér fyrir neðan má sjá myndir af ferlinu.
Turninn stóð við hliðina á þessari gömlu hlöðu sem einnig var gerð upp og breytt í hesthús

Tekið í miðnætursólinni rétt við gistiturninn