
IS2008157517
Litur: Jarpur
F: Aðall frá Nýjabæ (8,64)
FF: Adam frá Meðalfelli (8,24)
FM: Furða frá Nýjabæ (8,06)
M: Lára frá Syðra-Skörðugili (8,35)
MF: Glampi frá Vatnsleysu (8,35)
MM: Klara frá Syðra-Skörðugili
Hæð á herðar: 150 cm (stangarmál)
Nökkvi er einn mesti gæðingur landsins. Hann sigraði B-flokk á Landsmótinu á Hólum 2016 og var annar í B-flokki á LM í Reykjavík 2018.
Hann hefur fengið í kynbótadómum 9,5 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið og 9 fyrir háls/herðar/bóga, bak og lend, hófa, skeið, stökk, vilja og geðslag. Í hæsta dómi sínum 2019 hlaut hann 8,66 í aðaleinkunn og fékk þar 9 fyrir skeið. Enginn annar hestur hefur bæði unnið B-flokk á Landsmóti og fengið seinna 9 fyrir skeið í kynbótadómi. Þess má geta að Nökkvi hefur fimm sinnum hlotið 9,5 fyrir brokk í kynbótadómi.
Nökkvi er af sterkum Hornfirskum ættum, t.d. er Nökkvi 260 frá Hólmi 18 sinnum í hans ættartölu.
Við eignuðumst Nökkva haustið 2020.
Nökkvi og Jakob Svavar 2017








