Við höfum árum saman reynt að halda við Hornfirska stofninum eftir bestu getu, en það er sannfæring okkar að gott sé að geta gripið í blóðið seinna meir þegar hrossaræktin er orðinn einn “hrærigrautur”.
Hanný hefur sterkar taugar til Hornfirsku hestanna, en hún kom sem tamningamaður í Hornafjörðinn 1987, fyrst í Árnanes. Voru þá enn til mikið af hornfirskum gæðingum sem hún kynntist af eigin raun og hefur leitað í alla tíð síðan.
Hross af þessu stofni eru yfirleitt mjög gæf og mannelsk að eðlisfari, en miklir persónleikar og sjálfstæðir. Oftast mjög auðveld í tamningu ef rétt er að þeim farið og þeim gefinn tími. Eykst þá viljinn hægt og bítandi og getur orðið, eins og orðað hefur verið um Blakk frá Árnanesi, “skap og fjör svo mikið, að ekki væri þörf á meiru fyrir kröfuharðan hestamann.”
Töltið er aðallinn hvað ganginn varðar, úthaldið á gangi og rýmið oft á tíðum ævintýralegt.
Lýsir Þorkell Bjarnason, fyrrverandi hrossaræktarráðunautur, því best með eftirfarandi setningu:
“Enginn maður heldur út að ferðast svo lengi, án hvíldar, að hann nálgist það að vera til frásagnar þegar viljinn fjarar út í hornfirskum viljahesti.” (Jódynur 1990)
Helstu áhrifavaldar í okkar Hornfirsku ræktun eru feðgarnir; Ófeigur frá Hvanneyri, Flosi frá Brunnum og Gustur frá Grund.
Stóðhestar
Árið 2010 fórum við að velta fyrir okkur hvaða hesta við gætum notað á Hornfirsku hryssurnar, sem myndu passa vel við stofninn, en ekki er um marga hornfirska hesta að velja og ljóst að einhver blöndun er í framtíðinni óhjákvæmileg. Eftir þessar vangaveltur gerðum við ræktunartilraun árið 2011 þar sem við héldum hornfirskum hryssum undir Akk frá Vatnsleysu. Það kom mjög vel út og héldum við áfram að nota Akk á Hornfirskar hryssur í mörg ár. Nánar má lesa um þetta hér og þar á meðal hvers vegna við leituðum í þetta blóð.
Nú höfum við valið að nota Nökkva frá Syðra-Skörðugili, í honum sameinast sterkar Hornfirskar línur.

Hryssur
FF: Gustur frá Grund.
MFF: Flosi frá Brunnum.
MMF: Ófeigur frá Hvanneyri.
Gargandi Snilld er fjörug alhliða hryssa, fædd okkur. Hún er undan Musku frá Viðborðsseli sem var góð alhliðahryssa sem við áttum og svo er faðir hennar Kolskeggur frá Oddhóli. Gargandi fór í folaldseign sumarið 2014, en til var undan henni einn foli, Ófeigur, síðan hún var yngri.
Kolskegg, föður Gargandi, þarf vart að kynna. Hann er Gustssonur frá Grund og hefur verið í toppbaráttunni í A-flokk um árabil.
Muska, móðir Gargandi er mikið hornfirsk. Faðir hennar er Kópur frá Mykjunesi, sem var Flosasonur frá Brunnum og móðir Musku, Raun frá Flatey, var sammæðra Skó og Fífli frá Flatey, en faðir hennar er svo Ófeigur frá Hvanneyri.

Edda frá Hlemmiskeiði I
F: Byr frá Mykjunesi
M: Apríl frá Árnanesi (hreinræktuð af gamla stofninum í Árnanesi)
FMF: Skór frá Flatey
FMMF: Ófeigur frá Hvanneyri
Mikið hornfirsk ræktunarmeri. Móðir Eddu er hreinræktuð af gamla stofninum í Árnanesi. Faðir hennar (Byr) hefur Skó frá Flatey sem MF og Ófeig frá Hvanneyri sem MMF.


F: Moli frá Skriðu
FFMMM: Irpa frá Kyljuholti
MFF: Fífill frá Flatey
MFMF: Ófeigur frá Hvanneyri (8,55)
Stjarna undan Mola frá Skriðu (F: Glampi frá Vatnsleysu). Hún er mikill Hornfirðingur í móðurætt með Fífil frá Flatey sem MFF og Ófeig frá Hvanneyri sem MFMF. Einnig má finna Nökkva frá Hólmi nokkrum sinnum aftar í ættartrénu.


Mön frá Hindisvík, fædd 2017
F: Nökkvi frá Syðra-Skörðugili (8,48)
M: Gargandi-Snilld frá Dynjanda
MM: Muska frá Viðborðsseli 1
Stór og myndarleg bleik hryssa. Mön er undan landsmótssigurvegaranum Nökkva frá Syðra-Skörðugili. Ef litið er á ættartré Nökkva má þar finna töluvert af hornfirsku blóði. Hann er einnig undan dóttur Glampa frá Vatnsleysu og er þar aftur tenging í Báru frá Ásgeirsbrekku (Hornafjörður x Lýsingur).


Hera frá Hindisvík, fædd 2019
F: Nökkvi frá Syðra-Skörðugili (8,48)
M: Gargandi-Snilld frá Dynjanda
MM: Muska frá Viðborðsseli 1

Unghross í uppvexti
Sunna frá Hindisvík, fædd 2020
F: Skálmar frá Nýjabæ (8,64)
M: Stjarna frá Runnum

Stika frá Hindisvík, fædd 2020
F: Skálmar frá Nýjabæ (8,64)
M: Hanný frá Þúfu

Irpa frá Hindisvík, fædd 2020
F: Skálmar frá Nýjabæ (8,64)
M: Edda frá Hlemmiskeiði 1

Freyja frá Hindisvík, fædd 2022
F: Nökkvi frá Syðra-Skörðugili
M: Fimma frá Dynjanda

Sólrún frá Hindisvík, fædd 2022
F: Nökkvi frá Syðra-Skörðugili
M: Stjarna frá Runnum

Eyvör frá Hindisvík, fædd 2023
F: Nökkvi frá Syðra-Skörðugili
M: Edda frá Hlemmiskeiði 1

Melrós frá Hindisvík, fædd 2023
F: Nökkvi frá Syðra-Skörðugili
M: Melkorka frá Miðfelli
