Skip to content

Um okkur

    Tobbi er búinn að stunda hrossarækt, tamningar, járningar, kennslu og hestaferðir alla tíð. Hann rak ásamt föður sínum, Agnari Norland, hrossaræktarbú í Hindisvík í mörg ár. Einnig byggði hann ásamt föður sínum og rak hestamiðstöðina Hindisvík í Mosfellsbæ, sem var ein af fyrstu reiðhöllum landsins. Tobbi var starfandi íþróttadómari í mörg ár.


    Hanný er ættuð frá Þýskalandi. Hún kom fyrst til Íslands 1981 og flutti alveg hingað 1984.
    Hanný er menntaður hestabúfræðingur og reiðkennari frá Þýskalandi og líka með tamningapróf og B-reiðkennararéttindi frá FT, en er ekki í félaginu lengur. Hún var gæðingadómari í yfir 20 ár og hefur starfað við tamningar í yfir 30 ár, þar af var hún 26 ár í Hornafirðinum. Hanný kenndi auk þess knapamerkin í nokkur ár í Framhaldsskóla Austur Skaftafellssýslu.


    Svalbarð

    Hanný og Tobbi búa á Svalbarði sem er 20 km frá Hvammstanga


    Heiða Heiler er dóttir Hannýjar og hefur verið með “hestabakteríuna” síðan hún man eftir sér. Hún hefur starfað víða við tamningar, þjálfun og reiðkennslu, og sér um heimasíðuna okkar.
    Heiða er menntaður reiðkennari og hestabúfræðingur frá Þýskalandi og með tamningarpróf IPZV.

    Sæból

    Heiða, Bjarni og dóttir þeirra Svava Lind búa á Sæbóli, sem er lítil jörð rétt hjá Hvammstanga.